
Oppo Find X9 ULTRA: Síminn sem sameinar krafta Hasselblad og snjallsíma
6.07.2026Fyrir marga er síminn orðinn aðalmyndavélin, notaður til að fanga augnablik á ferðinni og í daglegu lífi. Þess vegna skipta myndgæði orðið meira máli en nokkru sinni fyrr þegar kemur að snjallsímum.
OPPO Find X9 Ultra er hannaður með þetta í huga. Hér er myndavélin ekki aukaatriði heldur kjarninn í upplifuninni, en síminn nálgast ljósmyndun á svipaðan hátt og hefðbundnar myndavélar.
Myndavélakerfi í aðalhlutverki

OPPO Find X9 Ultra er búinn fjórföldu myndavélakerfi sem sameinar háa upplausn og ólíkar linsur, sem gerir þér kleift að taka fjölbreyttar myndir við ólíkar aðstæður.
Aðalmyndavélin er 200 MP með stórum 1/1.12″ skynjara og ljósopi upp á f/1.5, sem hjálpar til við að ná meiri birtu og skýrleika í hverri mynd.
Síminn er einnig með 200 MP 3x periscope telephoto linsu (70mm), sem hentar vel fyrir portrettmyndir og nærmyndir, ásamt 50 MP 10x periscope telephoto linsu (230mm) sem gerir þér kleift að ná myndefni í meiri fjarlægð með góðum smáatriðum.
Auk þess er 50 MP víðlinsa (14mm, 123°) sem hentar vel fyrir landslag og stærri senur þar sem meira kemst í rammann.
Myndavélakerfið styður sjálfvirkan fókus (e. autofocus) og stöðugleika á helstu linsum, sem hjálpar til við að halda myndum skýrum.
Hasselblad-samstarfið gegnir mikilvægu hlutverki í myndavélakerfinu og stuðlar að náttúrulegum litum og vandaðri myndvinnslu.
Aðdráttur sem nær lengra
Einn helsti styrkleiki OPPO Find X9 Ultra er aðdrátturinn. Með allt að 10x ljósfræðilegum aðdrætti (e. optical zoom) er hægt að ná fjarlægu myndefni með góðri skerpu.
Síminn styður einnig allt að 20x aðdrátt í ljósfræðilegum gæðum, sem heldur góðum smáatriðum við meiri fjarlægð. Þetta gerir hann sérstaklega hentugan við aðstæður þar sem erfitt er að komast nær, eins og á viðburðum, í náttúrunni eða á ferðalögum.
Portrettmyndir

OPPO Find X9 Ultra er með 200 MP 3x aðdráttarlinsu (70mm) sem er sérstaklega hönnuð fyrir portrettmyndir. Með stórum 1/1.28″ skynjara og f/2.2 ljósopi nær linsan að taka inn meiri birtu en margar hefðbundnar telephoto linsur, sem skilar sér í skýrari myndum og mýkri dýpt.

Þetta hjálpar til við að skapa bakgrunnsmýkt (e. bokeh) og skýrari fókus á myndefnið, sem gefur myndunum meira myndavélalegt útlit.
Linsan styður einnig nærmyndatöku frá um 15 cm fjarlægð, sem gerir kleift að ná smáatriðum með mikilli nákvæmni, jafnvel þegar zoomað er inn.
Litir og Hasselblad upplifun
Með áratuga reynslu Hasselblad í ljósmyndun hefur OPPO þróað myndavélakerfi sem leggur áherslu á náttúrulega liti og vandaða myndvinnslu. Litastýring símans er byggð á Hasselblad Colour og hönnuð til að skila náttúrulegum litum og raunverulegum húðtónum.
Með Hasselblad portrettstillingu og LUMO True Face reikniritinu verða portrettmyndir með mýkri dýpt og náttúrulegri tónbreytingum, sem gefur myndunum meira jafnvægi og raunverulegt útlit.
Þetta skilar sér í náttúrulegum litum og mýkri dýpt í portrettmyndum.
Fangaðu augnablikið í 8K upplausn
OPPO Find X9 Ultra styður 8K myndbandsupptöku ásamt 10-bit log (O-Log2), sem gefur meira svigrúm til að vinna með liti og birtu í eftirvinnslu.
Með ACES-litaferli er litastýring stöðug frá upptöku til vinnslu, sem skilar sér í nákvæmari og samræmdari litum í myndböndum.
Stöðugleiki (OIS og EIS) og HDR hjálpa einnig til við að halda myndböndum stöðugum og skýrum, jafnvel þegar tekið er á hreyfingu. Þetta gerir símann hentugan bæði fyrir daglega notkun og skapandi efnisvinnslu.
Háskerpa og flæðandi upplifun
Síminn er með 6.82″ AMOLED skjá með allt að 144Hz endurnýjunartíðni sem gerir hreyfingar mýkri og viðbrögð skjásins hraðari í notkun.
Skjárinn er með 2K upplausn og allt að 3600 nits birtu, sem gerir hann skýran bæði innandyra og utandyra, jafnvel í mikilli birtu.
Með stuðningi við Dolby Vision og nákvæmri litastýringu er skjárinn einnig hentugur til að skoða myndir og myndbönd, þar sem litir og smáatriði njóta sín betur.
Afköst sem halda í við notkunina
OPPO Find X9 Ultra er knúinn Snapdragon 8 Elite Gen 5 örgjörva ásamt Trinity Engine, sem sér um að halda kerfinu stöðugu og hraðvirku í daglegri notkun.
Þetta skilar sér í mjúku flæði þegar unnið er í mörgum öppum í einu, við myndvinnslu eða upptöku í hárri upplausn.

Síminn er einnig hannaður til að halda afköstum stöðugum yfir lengri tíma, meðal annars með kælikerfi sem hjálpar til við að draga úr hitamyndun við álag.
Með 7050 mAh rafhlöðu styður OPPO Find X9 Ultra bæði hraðhleðslu og þráðlausa hleðslu, sem gerir auðveldara að halda símanum gangandi yfir daginn.
Skandinavískur innblástur og klassísk form
Hönnun OPPO Find X9 Ultra sækir innblástur í Hasselblad myndavélar og skandinavíska hönnun, þar sem einfaldleiki og náttúruleg form eru í forgrunni.
Litaval og hönnun sækja innblástur í náttúruna, með hreinum línum og yfirbragði sem vísar í klassískar ljósmyndavélar. Hönnunin leggur áherslu á bæði útlit og notagildi, þar sem síminn er hannaður til að liggja vel í hendi og veita öruggt grip.

Þetta skilar sér í tæki sem sameinar minimalískt útlit og vandaða áferð, án þess að fórna þægindum í daglegri notkun.
Byggður til að endast
OPPO Find X9 Ultra er hannaður með endinguna í huga. Með IP66, IP68 og IP69 vörn þolir hann bæði ryk og vatn, sem gerir hann betur í stakk búinn til að takast á við fjölbreyttar aðstæður.
Síminn er einnig varinn með Gorilla Glass Victus 2, sem eykur mótstöðu gegn rispum og höggum, og gerir hann endingarbetri í daglegri notkun.
Auk þess er hann með yfirborðsvörn sem hjálpar til við að draga úr blettum og halda útlitinu hreinu lengur.

OPPO Find X9 Ultra nýtir OPPO AI til að einfalda daglega notkun og spara tíma. AI getur meðal annars umritað og tekið saman fundi og hljóðupptökur, aðstoðað við skrif, þýtt matseðla og annað efni í rauntíma, skipulagt glósur og upplýsingar í AI Mind Space og hjálpað til við að halda utan um kvittanir og útgjöld. Auk þess nýtast AI-eiginleikar við myndvinnslu, þar sem auðvelt er að fjarlægja hluti, skerpa myndir og bæta portrettmyndir með örfáum snertingum.
