
Samsung barnastilling – Samsung Kids
7.07.2026Samsung Kids breytir Galaxy símanum eða -spjaldtölvunni í barnvænt snjalltæki sem býður upp á nám og afþreyingu um leið og öryggi barnanna er tryggt.
Með Samsung Kids geturðu á auðveldan hátt stýrt aðgangi að öppum, sett tímamörk og fylgst með notkun, og þannig skapað öruggt umhverfi fyrir börnin þín. Samsung Kids er í boði fyrir Galaxy-síma og -spjaldtölvur með Android 9.0 stýrikerfi eða nýrra og býður upp á fjölbreytta afþreyingu, svo sem að hringja í valda tengiliði, taka myndir, spila smáleiki, hlusta á tónlist og margt fleira.

Foreldrar geta sérsniðið upplifunina enn frekar með því að breyta stillingum fyrir skjátíma, háttatíma og leyfilegt efni. Til þægindaauka er hægt að opna Samsung Kids beint af flýtistillingastikunni.
Afhverju að stilla síma eða spjaldtölvu á Kids Mode?
Í dag eru snjalltæki orðin stór hluti af daglegu lífi fjölskyldna. Börn nota sífellt oftar síma og spjaldtölvur til að læra, horfa á myndbönd, spila leiki og eiga samskipti. Þess vegna skiptir máli að foreldrar geti tryggt örugga og aldurshæfa notkun. Samsung Kids Mode er lausn sem hjálpar foreldrum að skapa öruggt stafrænt umhverfi fyrir börn á Samsung Galaxy tækjum.
Markmiðið er að börn geti notað tækið sjálfstætt án þess að komast óvart í mikilvægar stillingar, eyða gögnum eða opna efni sem hentar þeim ekki.

Helstu kostir Samsung Kids
Öruggt umhverfi
Foreldrar stjórna hvaða öpp, leikir og efni eru aðgengileg. Börnin hafa aðeins aðgang að því sem hefur verið samþykkt.
Stjórnaðu skjátímanum
Hægt er að setja dagleg tímamörk fyrir notkun tækisins. Þegar tíminn rennur út lokast Kids Mode sjálfkrafa, sem auðveldar að halda jafnvægi milli skjátíma og annarra athafna.
Foreldrar geta fylgst með notkun barnsins, skoðað hvaða öpp eru mest notuð og stillt aðgang að nýju efni með PIN-númeri eða lykilorði.

Náms- og afþreyingarefni
Samsung Kids býður upp á fjölbreytt úrval af leikjum, sögum og fræðsluefni sem er hannað með aldur barna í huga. Mörg forrit leggja áherslu á sköpun, rökhugsun og nám í gegnum leik.
Hvernig er Samsungs Kids sett upp / virkjað?
Á flestum Samsung Galaxy tækjum er hægt að virkja Samsung Kids með því að:
- Opna flýtistillingar með því að strjúka niður efst á skjánum.
- Ýta á Samsung Kids táknið.
- Fylgja leiðbeiningunum við fyrstu uppsetningu.
- Velja PIN-númer eða lykilorð fyrir foreldraaðgang.
Ef táknið birtist ekki er oft hægt að bæta því við úr flýtistillingunum eða uppfæra hugbúnað tækisins.

Fyrir hvaða aldur hentar Samsung Kids?
Samsung Kids er fyrst og fremst hannað fyrir yngri börn, en foreldrar geta sérsniðið upplifunina eftir aldri og þroska barnsins. Með því að velja viðeigandi öpp og stillingar er auðvelt að laga umhverfið að þörfum hvers barns. Ef þú ert t.d að leyfa 8-10 ára barni að fá snjallsíma en vilt ekki að barnið geti sótt öll forrit og leiki getur þú sett upp Kids mode með þau forrit sem þú leyfir, og stillt inn skjátíma sem er leyfinlegur.
Smelltu hér til að skoða Samsung snjallsíma og hér fyrir spjaldtölvur.