Fróðleikur

Það er einfalt að flytja gögn úr gamla símanum

8.12.2023

Ertu að íhuga að færa þig yfir í Samsung Galaxy síma eða uppfæra úr gömlum Galaxy yfir í nýjan? Með Smart Switch er auðvelt að færa gögn og jafnvel stillingar yfir í nýjan símann.

Hönnnunin. Íslenska notendaviðmótið. Frelsið fyrir þig sem notanda. — Þær eru margar og mismunandi ástæðurnar sem fólk hefur til að skipta yfir í Samsung Galaxy. Og fyrir þig sem þegar hefur ákveðið þig — eða ert að velta því fyrir þér — erum við hér með leiðbeiningar sem gera flutninginn vonandi enn auðveldari.

Hamingjan felst í einfaldleikanum

Skelltu upp nýjum Galaxy fljótt og örugglega. Það sem þú hefur sankað að þér í gegnum tíðina fylgir með ef þú vilt — meira að segja vekjaraklukkan,  færslur í dagatöl og símtalaskrá. Við gerum þér þetta eins einfalt fyrir þig svo þú getir notið þín.


Smart Switch í þremur einföldum skrefum

Byrjaðu strax. Þú getur sótt appið á Google Play eða náð í forritið fyrir PC eða Mac.

Sækja forrit fyrir: Android – Google Play, Windows, Apple – Mac App Store

Þegar þú ert búinn að ná í Smart Switch appið leiðbeinir það þér í gegnum ferlið.


Svona er það í stuttu máli.

Tengja

Tengdu tækin saman með kapli. iPhone Lightning to USB-C eða iPhone Lightning to USB-A ásamt OTG- millistykki. Einnig er hægt að flytja gögn þráðlaust.

Velja

Stilltu bæði tækin þannig að þau leyfi samskipti milli hvors annars og veldu hvaða gögn þú vilt flytja.

Flytja

Þegar þú hefur valið hvað þú vilt flytja setur þú flutninginn af stað. Þegar flutningi er lokið er nýji Samsung Galaxy 

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.