
Upplýsingar vegna neyðarsímtala (112) og lokunar 2G/3G símkerfa
16.06.2026ELKO hefur fengið fyrirspurnir frá viðskiptavinum vegna þess að tiltekin símtæki virðast í sumum tilvikum eiga í erfiðleikum með að ná sambandi við Neyðarlínuna (112) eftir lokun eldri 2G- og 3G-símkerfa á Íslandi.
Lokun 2G- og 3G-kerfa hefur verið innleidd af íslenskum fjarskiptafélögum í samráði við Fjarskiptastofu. Í kjölfar þess hafa komið upp tilvik þar sem ákveðin símtæki virðast ekki koma neyðarsímtölum áleiðis með eðlilegum hætti.
Orsök málsins er enn til skoðunar hjá fjarskiptafélögunum, framleiðendum símtækja og öðrum hlutaðeigandi. Þótt ekki liggi fyrir endanlega niðurstaða um orsök vandans eru vísbendingar um, eftir því sem ELKO kemst næst, að í einhverjum tilvikum geti samspil hugbúnaðar símtækja og breytinga á fjarskiptainnviðum haft áhrif á hvernig neyðarsímtöl eru meðhöndluð þó svo allir aðrir þættir í viðkomandi símtæki sýni fulla virkni.
Hvað geta notendur gert?
- Ganga úr skugga um að símtækið sé uppfært í nýjustu hugbúnaðarútgáfu.
- Prófa að hringja í þjónustunúmer Neyðarlínunnar, 1280.
- Ef símtalið kemst ekki í gegn, hafa þá samband við fjarskiptafélag sitt til að fá frekari aðstoð og ráðgjöf.
- Setja upp 112 appið sem viðbótaröryggisráðstöfun. Nánari upplýsingar má finna á www.112.is.
- Vistaðu símanúmerið 5702112 í símaskránni. Þetta er númer neyðarlínunnar sem þjónusta símtöl erlendis frá og er það þjónustað af sama starfsfólki Neyðarlínunnar og svarar símtölum í gegnum 112.
- Einnig er hægt að ná sambandi við Neyðarlínuna í gegnum gervihnött með því að hringja í síma 8090112
Í samræmi við framangreint er öllum notendum ráðlagt að prófa símtæki sín með því að hringja í 1280. Náist samband eiga að heyrast skilaboðin:
„Prófun, neyðarsímtal. Símtalið þitt komst til skila.“
Vegna aukins álags getur verið nauðsynlegt að reyna oftar en einu sinni að ná sambandi við 1280..

Uppfærslur frá framleiðendum
Samkvæmt upplýsingum sem ELKO hefur fengið frá fjarskiptafélögunum vinna framleiðendur tiltekinna símtækja að hugbúnaðaruppfærslum sem ætlað er að bæta stuðning við neyðarþjónustu eftir breytingarnar á símkerfum. Uppfærslur eru væntanlegar á mismunandi tímum í sumar eftir framleiðendum og gerðum símtækja.
Í sumum tilfellum gæti verið að ekki sé uppfærslustuðningur við eldri símtæki og er þá nauðsynlegt að endurnýja tækið til að tryggja samband við Neyðarlínuna.
ELKO fylgist náið með málinu
ELKO er í samskiptum við framleiðendur, dreifingaraðila og fjarskiptafyrirtæki vegna málsins og mun miðla frekari upplýsingum þegar staðfestar niðurstöður eða leiðbeiningar liggja fyrir.
Við hvetjum viðskiptavini sem telja sig verða fyrir áhrifum af þessu máli til að uppfæra tæki sín, prófa samband við 1280 og hafa samband við sitt fjarskiptafélag ef upp koma vandamál.