Fréttir

Við tökum flugið

1.04.2024

**Aprílgabb ELKO 2024**

Gerum lífið skemmtilegra

Með því að bjóða upp á verslun um borð gefst farþegum kostur á að versla raftæki á lægra verði en í bænum, markmið flugfélagsins er að bæta og auka skemmtanagildi í flugi og eru kjörorð ELKO Air, gerum flugið skemmtilegra þar sem segja má að fríið byrji fyrir alvöru í ferðalaginu en ekki á áfangastaðnum.  

Gerum flugið skemmtilegra 

PlayStation,  Nintendo og Steam Deck afþreyingarkerfin er frábær viðbót þar sem allir aldurshópar geta fundið skemmtun til að stytta sér stundir í háloftunum. Hvort sem þú spilar sjálfur eða keppir við sessunaut þinn þá gerir afþreyingarkerfið flugið styttra og ánægjulegra.  

Skjákerfið í flugvélinni bíður upp á PlayStation remote play tengingu en einnig er hægt að horfa á nýlegar þáttaraðir og kvikmyndir. Hægt er að borga fyrir háhraða nettengingu og horfa á efni frá öllum helstu streymisveitum háð aðgangi farþega að mismunandi veitum.

Skjákerfið í flugvélinni bíður upp á PlayStation remote play tengingu en einnig er hægt að horfa á nýlegar þáttaraðir og kvikmyndir. Hægt er að borga fyrir háhraða nettengingu og horfa á efni frá öllum helstu streymisveitum háð aðgangi farþega að mismunandi veitum.  


Hvar er taskan mín?

Hefur þú lent í því að þú ferð til Danmörku en ferðataskan fer til Tene?  Þeir sem panta flug með ELKO Air fá möguleika á að að bæta við SmartTag eða AirTag staðsetningarnema í innritaða tösku til að geta fylgst með að hún fari örugglega um borð og fari með þér á réttan áfangastað. Staðsetningarneminn er sendur til þín 10 dögum fyrir flug og þú getur þannig sett upp nemann í Samsung eða Apple iPhone snjallsímanum þínum.  


Verslun í háloftunum með afþreyingu að leiðarljósi

Í vasanum í sætisbakinu er að finna ELKO blað sem sýnir vöruúrvalið sem er í boði í um borð. Hvort sem það eru ný heyrnartól, spjaldtölva eða leikjatölvur til að nota í fluginu, Chilly´s eða Stanley brúsi til að svala þorstanum á ferðalaginu eða kaup á gjöf handa makanum á leið heim úr vinnuferð, þá finnur þú eitthvað sem hentar þér í flugverslun ELKO.  


Ef þú ert að leita að nánari upplýsingum um ELKO Air, til dæmis varðandi flugáætlanir, verðlagningu, eða afþreyingarkerfið um borð, getur þú kíkt inn á air.elko.is.


Um er að ræða aprílgabb en viljir þú taka flugið þitt á næsta stig og stytta þér stundir í háloftunum þá er ekkert af áður nefndum afþreyingarmöguleikum það fjarstæðukenndur að þú getir ekki látið draumaflugið þitt rætast með réttu græjunum úr ELKO. Við minnum á að í verslunum ELKO á keflavíkurflugvelli er boðið upp á 20% lægra verð en í öðrum verslunum félagsins og því kjörið að gera góð kaup fyrir næsta flug.   

Við vonum að þú hafir haft gaman af þessu létta aprílgabbi og óskum þér skemmtilegri ferðalaga í framtíðinni. 

Kær kveðja Starfsfólk ELKO 

Það var ekki ætlunin að setja út á þjónustu flugfélaga á nokkurn hátt, heldur einungis að benda á tilvalda ferðafélaga sem geta gert ferðalagið þitt betra, þægilegra og ánægjulegra. 


Myndbanki fyrir fjölmiðla:

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.