
Vöfflur með sódavatni
23.03.2021Hefur þú prófað að baka vöfflur og nota sódavatn í deigið? Sú aðferð er notuð til þess að fá extra mjúkar vöfflur en samt fá stökkt yfirborð.
Þessi uppskrift er aðeins öðruvísi en hefðbundin íslensk vöffluuppskrift. Í henni er bæði sódavatn og grískt jógúrt en hægt er að nota súrmjólk í staðinn fyrir gríska jógúrtið ef það er ekki til staðar.
Ef þú vilt hafa vöfflunar extra stökkar eru nokkrar aðferðir fyrir það listaðar upp neðst í blogginu.
Hráefni:
- 2 egg
- 4 tsk lyftiduft
- 2 msk sykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1/4 tsk salt
- 2 msk smjör (brætt og látið kólna)
- 3,0 dl mjólk
- 4,0 dl hveiti
- 1 dl grískt jógúrt
- 1,2 dl sódavatn (bragðlaust)
Aðferð:
- Settu öll hráefnin, fyrir utan sódavatnið í blandara og notaðu PULSE stillinguna 3-4x þangað til að deig myndast.
- Bættu við sódavatnið og notaðu PULSE stillinguna 2-3x þangað til allt er blandað saman eða hrærðu saman með skeið eða þeytara.
- Ef þér finnst deigið of þunnt getur þú bætt við örlitlu af hveiti.
- Hitaðu vöfflujárnið, notaðu olíusprey ef þess þarf en ef tefal húð á járninu er góð ætti það að vera óþarfi.
- Tilvalið að bera fram með sultu og rjóma, tilbúnu Betty Crocker kremi eða ís.
Viltu stökkari vöfflur?
Til þess að fá stökkar vöfflur getur þú til dæmis skipt út 1/2 dl af hveiti fyrir kartöflumjöl eða maizena mjöl. Aðrir setja 1-2 tsk af Amaretto (Möndlu líkjör) út í deigið. Þriðja aðferðin er að búa til ‘buttermilk’ með því að finna til magn af mjólk, bæta við 1 tsk af sítrónusafa og leyfa því að standa á borði í 10-15 mín áður en deigið er sett saman.
Ef þú þarft að græja þig upp fyrir þessa uppskrift getur þú skoðað vöfflujárn, blandara og Sodastream tæki á elko.is.