Fróðleikur

Brúðkaupsljósmyndun

25.05.2018

Myndataka í brúðkaupum

Til að taka flottar myndir í brúðkaupum þarf réttan búnað, tækni, viðbragðstíma og þekking á athöfn og dagskrá er góður kostur. Hágæða aðdráttarlinsa, þrífótur og auka minniskort er nauðsynlegt að hafa með í myndavélatöskunni.

Búnaður fyrir brúðkaupsljósmyndun

Myndavélin

Hin fullkomna myndavél fyrir brúðkaupsljósmyndun er hraðvirk, fjölhæf og vél sem vinnur vel í lélegum birtuskilyrðum. Flestar nútíma DSLR myndavélar uppfylla þessar kröfur, en sumar eru betri en aðrar hvað varðar hraða og möguleika í stillingum.

Linsan

Ljósmyndarar mæla með góðum aðdráttarlinsum sem hafa einnig stórt ljósop, eins og t.d. 28-70mm f/2.8 og 70-200mm f/2.8 linsur.  Þrátt fyrir það er einnig hægt að taka frábærar myndir með víðlinsum ef ljósop er stórt (e. aperture, lærri tala = stærra ljósop).

Þrífótur

Þrífótur er nauðsynlegur þegar þú ert að taka mynd við lítil birtuskilyrði eða til dæmis hópmynd.

Góð ráð

Tvær myndavélar / tvær linsur

Myndavél með góðum aðdrætti er með fjölbreytta brennivídd en þú ættir að hafa tvær myndavélar með þér í brúðkaupið, eina með aðdráttarlinsu og eina með víð linsu. Þá nærðu frekar að fanga bæði lítil og stór augnablik í brúðkaupinu.

Undirbúningur

Það að þekkja brúðhjónin, kirkjuna, húsnæðið og nærliggjandi garða er nauðsynlegt ef þú vilt ná fallegum brúðkaupsmyndum. Skoðaðu veðurspána og passaðu að búnaðurinn þinn er tilbúin, rafhlöður hlaðnar og minniskort í lagi.

Flassið

Reyndu að lágmarka notkun á flassi og notaðu frekar náttúrlega lýsingu. Ekki nota flass í athöfninni og reyndu alltaf að stilla flassið svo það lýsir á vegg eða loft frekar en beint í andlit.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.