
Hindberja skál
27.09.2017Það jafnast ekkert á við ljúffenga smoothy skál á góðum morgni. Nutribullet færir okkur þessa súrsætu skál gefur twist í daginn. Toppaðu hana svo með uppáhalds meðlætinu þínu! … granóla, ávextir, ber, kókosflögur, chiafræ… Mmmm..
Það sem þú þarft:
- 50g af frosnum banana
- 50g af frosnum hindberjum
- 50g af grískri jógúrt
- 150ml af kókosmjólk
Hrærðu öllu saman í blandaranum þar til áferðin verður mjúk, helltu í skál og stráðu meðlætinu yfir eða drekktu bara beint úr glasi.

Fyrst og fremst,
njóttu.