
Heimagert bragðefni fyrir sumardrykkina
18.04.2018Ef þú vilt poppa sódavatnið eða kokteilinn upp er lítið mál að útbúa bragðsýróp.
Jarðaber, hindber, bláber, sítróna, lime, appelsína, mangó, ananas, ástaraldin, mynta, kókos – þú getur rétt ímyndað þér hvað hægt er að leika sér mikið með þetta.
Gott hlutfall er:
- 3 msk vatn
- 3 msk hlynsýróp
- 300g jarðaber/bláber/mangó…
Settu allt saman í lítinn sósupott og leyfðu því að maukast og malla. Þú ræður hvort þú vilt halda hretinu eða sía það úr þegar þú setur sýrópið í ílát (glerflöskur undan kaldpressuðum ávaxtasöfum sniðugar).
Sýrópið geymist í 10-14 daga í ísskáp.
Auðvitað fer það eftir smekk hversu mikið sýróp þú vilt bæta við í drykkinn en annars er ein matskeið hæfileg.
Gleðilegt sumar!