
Ljúffengt engifer-límónaði með sódavatni
26.09.2017Þessi frískandi drykkur slær í gegn við öll tilefni. Hann rennur vel niður og er meinhollur í þokkabót! Þú ert enga stund að hræra í svona.
Þú þarft:
- 1L Sódavatn
- 1-2 tappa af Sodastream Natural sítrónu bragðefni (fæst í ELKO)
- 4 Sítrónur
- 1 bút engifer (eftir smekk)
- Smá sítrónubörk eða myntulauf til skrauts og bragðbætis
- Klaka
Aðferð:
- Útbúðu sódavatn með SodaStream tækinu þínu
- Kreistu 3 sítrónur í stóra könnu
- Skerðu fjórðu sítrónuna í sneiðar bættu við út í könnuna
- Rífðu engiferbútinn ofan í könnuna
- Helltu nú sódavatninu í könnuna
- Bættu við 1-2 töppum af náttúrulega sítrónu bragðefninu
- Skreyttu að vild með sítrónuberki og myntulaufum

Njóttu!